Forsíða Veðurstofu Íslands

Veðurspá

Horfur næsta sólarhringinn

Suðaustan 5-15 m/s, hvassast S-til. Bjart með köflum N- og NA-lands, en súld eða dálítil rigning á sunnanverðu landinu. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast fyrir norðan. Hægari vindur og úrkomulítið á morgun.
Spá gerð 04.09.2010 06:37

Úrkomuspá Hitaspá Vindaspá

Fréttir

IMG_2346

1.9.2010 : Ágúst 2010

Hlýtt var í ágúst. Um vestan- og suðvestanvert landið var hann einn af fimm hlýjustu mánuðum frá upphafi mælinga en í öðrum landshlutum var heldur svalara að tiltölu, svalast á Austfjörðum. Hiti var þó alls staðar yfir meðallagi. Þurrt var sums staðar um landið norðvestanvert en fremur úrkomusamt víða annars staðar. Lesa meira
 
ský

31.8.2010 : Rannsóknarverkefnið Loftslag og orkukerfi (CES): lokaráðstefna

Alþjóðleg lokaráðstefna norræna rannsóknarverkefnisins Loftslag og orkukerfi (Climate and Energy Systems, CES) var haldin í Osló 31. maí til 2. júní síðastliðinn. Kynntar voru rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á orkuframleiðslu og orkukerfi. Verkefnið er það þriðja í röðinni frá 2001 og hafa þau öll verið undir stjórn Veðurstofu Íslands og fyrrum Vatnamælinga.

Lesa meira
 
maður krýpur í snjó, dregur ískjarna úr hólki

25.8.2010 : Leyndardómar Grænlandsjökuls

Ráðstefna haldin í Háskóla Íslands 27.- 29. ágúst 2010. Hún ber undirtitilinn Vitnisburður ískjarna, setlaga og jökla um loftslagsbreytingar og eldgosasögu og er haldin í tilefni af 70 ára afmæli Sigfúsar J. Johnsens, eðlis- og jöklafræðings við Hafnarháskóla. Sunnudaginn 29. ágúst er dagskráin opin öllum og á íslensku. Lesa meira
 
Jarðskjálftar á Íslandi í júlí 2010

23.8.2010 : Jarðskjálftar í júlí 2010

Um 1500 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL mælakerfi Veðurstofunnar í júlí. Stærsti atburður mánaðarins var skjálftahrina norðan við Grímsey og hófst hún 22. júlí. Lesa meira
 
Súlulínurit, blátt undir meðallagi, rautt yfir meðallagi

17.8.2010 : Enn ein staðfesting methita

Í samræmi við umfjöllun fjölmiðla um hitabylgjur og neikvæðar afleiðingar af þeirra völdum, benda nýjustu niðurstöður ERA-Interim endurgreiningarinnar til þess að meðalhiti landsvæða á norðurhveli jarðar utan hitabeltisins hafi slegið met í júlí 2010. Maí og júní 2010 voru einnig óvenjulega heitir. Lesa meira
 

Eldri fréttir


Fróðleikur

Skipting gulfuhvolfs jarðar, skýringarmynd

Gufuhvolf jarðar

Gufuhvolfi jarðar er skipt í mismunandi hvolf: veðrahvolf (troposphere), heiðhvolf (stratosphere), miðhvolf (mesosphere) og hitahvolf (thermosphere). Lesa meira
 

Fróðleikspistlar


 
Eplica CMS. eplica cmscms - for more info goto http://www.eplica.is.